
Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem kann að vera sprengihætta, svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Neistaflug
á slíkum svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Virða skal takmarkanir á
116 Vöru- og öryggisupplýsingar

eldsneytisstöðvum, svæðum þar sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að
sprengja. Svæði þar sem kann að vera sprengihætta eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði þar sem ráð
gæti verið að slökkva á vél bifreiðar, í farrýmum skipa, í efnageymslum eða við efnaflutninga og þar sem efni eða agnir, s.s.
ryk, sót eða málduft gæti verið í lofti. Hafa skal samband við framleiðendur ökutækja sem nýta fljótandi svartolíugas (própan
eða bútan) til að komast að því hvort nota megi tækið í grennd við þau.