
Neyðarsímtöl
Hringt í neyðarnúmer
1
Gakktu úr skugga um að kveikt sé á tækinu.
2
Athugaðu hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú þarft e.t.v. líka að gera eftirfarandi:
•
Setja SIM-kort í tækið.
•
Fjarlægja takmarkanir á símtöl sem þú hefur gert virkar í tækinu þínu, svo sem útilokun símtala, fast númeraval
eða lokaðan notendahóp.
•
Gakktu úr skugga um að tækið sé ekki í ótengdu sniði eða flugsniði.
•
Ef skjárinn og takkarnir á tækinu eru læstir skaltu opna þá.
3
Ýttu á hætta-takkann eins oft og þörf krefur til að hreinsa skjáinn.
4
Veldu
Sími
.
5
Sláðu inn opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
6
Ýttu á hringitakkann.
7
Gefðu nauðsynlegar upplýsingar með eins nákvæmum hætti og hægt er. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til
þess.
Mikilvægt: Virkjaðu bæði símtöl í og úr farsímanum og netsímtöl ef tækið styður netsímtöl. Tækið kann að gera tilraun
til að hringja neyðarsímtöl bæði gegnum farsímakerfin og gegnum þjónustuveitu netsímtala. Ekki er hægt að tryggja tengingar
við hvaða skilyrði sem er. Treystu aldrei eingöngu á þráðlaust tæki ef um bráðnauðsynleg fjarskipti er að ræða, t.d. í
bráðatilvikum.