
Aðgangsstaðahópar búnir til
Til að velja ekki einungis einn aðgangsstað í hvert sinn sem tækið tengist netinu er hægt
að búa til hóp sem inniheldur ýmsa aðgangsstaði til að tengjast netinu og tilgreina í
hvaða röð á að nota aðgangsstaðina. Til dæmis er hægt að bæta aðgangsstöðum fyrir
þráðlaust staðarnet og pakkagögn við aðgangsstaðahópinn og nota hópinn til að vafra
á netinu. Ef þráðlaust staðarnet er látið hafa forgang tengist tækið netinu um þráðlausa
staðarnetið, ef það er tiltækt, en um pakkagagnatengingu að öðrum kosti.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Nettengileiðir
.
Búa til nýjan aðgangsstaðahóp
Veldu
Valkostir
>
Ný nettengileið
.
Bæta aðgangsstöðum við aðgangsstaðahóp
Veldu hópinn og
Valkostir
>
Nýr aðgangsstaður
.
Afrita aðgangsstað frá öðrum hópi
Veldu hópinn, og veldu og haltu inni aðgangsstaðnum sem afrita skal, og veldu
Afrita
á annan stað
á sprettivalmyndinni.
Breyta forgangi aðgangsstaðar innan hóps
Veldu aðgangsstaðinn og haltu honum inni, og veldu
Breyta forgangi
á
sprettivalmyndinni.