Nokia C5 06 - Útilokanir

background image

Útilokanir

Útilokanir (sérþjónusta) gera þér kleift að takmarka símtöl í og úr tækinu. Þú getur t.d.

takmarkað allar úthringingar á milli landa eða innhringingar á meðan þú ert í útlöndum.

Til að breyta stillingunum þarf lykilorð fyrir útilokanir frá þjónustuveitunni.
Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Hringistillingar

>

Útilokanir

.

Símtöl útilokuð eða staða útilokana könnuð

Veldu tiltekna útilokunaraðgerð og

Virkja

eða

Athuga stöðu

. Útilokanir gilda um öll

símtöl, einnig gagnasendingar.
Netsímtöl frá nafnlausum aðila útilokuð

Veldu

Útilokun nafnlausra símtala

.