
Hreyfimyndir skoðaðar og þeim hlaðið niður
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Kvikm.banki
.
Tenging við kvikmyndaveitu
Til að tengjast þjónustu eða setja upp myndefnisþjónustu velurðu
Bæta við nýrri
þjónustu
og myndefnisþjónustu af vörulistanum.
Myndskeið skoðað
Til að skoða efnið sem þjónustan býður upp á skaltu velja
Myndstraumar
.
Efni sumra myndefnisþjónusta er raðað í flokka. Veldu flokk til að skoða myndskeið.
Hægt er að leita að myndskeiðum í þjónustunni með því að velja
Leita að
myndskeiðum
. Ekki er víst að allar þjónustur bjóði upp á leit.
Hægt er að straumspila sum myndskeið á meðan hlaða þarf öðrum í símann. Veldu
Valkostir
>
Sækja
til að hlaða niður hreyfimynd. Ef farið er út úr forritinu heldur myndin
áfram að hlaðast niður í bakgrunninum. Myndskeið sem hlaðið er niður eru vistuð í
Myndskeiðin mín.
Til að straumspila myndskeið eða horfa á myndskeið sem þú hefur hlaðið niður skaltu
halda fingri á myndskeiðinu og velja
Spila
í sprettivalmyndinni.
Hægt er að stjórna spilaranum með því að smella á stýritakkana á skjánum meðan
myndskeið er spilað.
Notaðu á hljóðstyrkstakkann til að stilla hljóðstyrkinn.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
Halda niðurhali áfram — Halda niðurhali áfram sem hlé hefur verið gert á eða sem
hefur mistekist.
Hætta við niðurhal — Hætta við niðurhal.
Sýnishorn — Forskoða myndskeið. Þessi valkostur er í boði ef þjónustuveitan styður
hann.
Um hreyfimynd — Skoða upplýsingar um myndskeið.
Uppfæra lista — Uppfæra lista yfir myndskeið.
Opna tengil í vafra — Opna tengil í vafranum.
Nokia Myndefnisþjónusta 59

Niðurhal tímasett
Ef forritið er stillt þannig að það sæki myndskeið sjálfkrafa getur slíkt falið í sér stórar
gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitunnar. Hafðu samband við
þjónustuveituna til að fá frekari upplýsingar um gagnaflutningsgjöld.
Hægt er að tímasetja sjálfvirkt niðurhal myndskeiða í þjónustu með því að velja
Valkostir
>
Áætluð niðurhöl
.
Video centre hleður daglega niður nýjum myndskeiðum sjálfvirkt á þeim tíma sem þú
tilgreinir.
Til að hætta við tímasett niðurhal skaltu velja
Handvirkt niðurhal
.