
Aukin ending rafhlöðu
Ýmsar aðgerðir tækisins ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu hennar. Til að
spara rafhlöðuna skaltu hafa eftirfarandi í huga:
•
Aðgerðir sem nota Bluetooth-tengingu eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í
bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru í notkun krefjast aukinnar rafhlöðuorku.
Slökktu á Bluetooth þegar þú þarft ekki að nota það.
•
Eiginleikar sem nota þráðlaus staðarnet (WLAN) eða leyfa slíkum eiginleikum að
keyra í bakgrunni meðan aðrir eiginleikar eru í notkun eyða meira af rafhlöðunni.
Slökkt er á þráðlausu staðarneti þegar ekki er verið að reyna að tengjast, engin
tenging er við aðgangsstað eða ekki er verið að leita að tiltæku netkerfi. Til að spara
rafhlöðuna enn frekar er hægt að stilla tækið þannig að það leiti ekki eða leiti
sjaldnar að tiltækum netkerfum í bakgrunninum.
•
Ef þú hefur valið
Pakkagagnatenging
>
Ef samband næst
í
tengingarstillingunum og ef það er engin pakkagagnatenging (GPRS) reynir síminn
reglulega að koma á pakkagagnatengingu. Til að lengja starfhæfan tíma tækisins
velurðu
Pakkagagnatenging
>
Ef með þarf
.
•
Kortaforritið hleður niður nýjum kortaupplýsingum þegar þú ferð á ný svæði á
kortinu en það eykur á orkuþörfina. Hægt er að koma í veg fyrir sjálfvirkt niðurhal
á nýjum kortum.
•
Ef sendistyrkur farsímakerfisins er breytilegur á þínu svæði verður tækið reglulega
að leita að tiltækum símkerfum. Þetta eykur orkuþörfina.
•
Baklýsing skjásins eykur orkuþörfina. Í skjástillingunum getur þú stillt birtustig og
breytt tímanum sem þú vilt að líði þar til slökkt er á baklýsingunni. Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Skjár
>
Birtustig
eða
Tímamörk ljósa
.
•
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku. Til að velja forrit sem ekki
eru í notkun heldurðu valmyndartakkanum inni og velur forrit.